Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hér að neðan má finna ýmsar útskýringar á því starfi sem fram fer í leikskólanum.

Leikskólastarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Lesa meira...
 
könnunarnám /(project aproach) Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Sigrún   


Könnunarnám (project aproach)

Í megin dráttum felst könnunarnám í að ýmis viðfangsefni eru tekin fyrir og rannsökuð vel og vandlega niður í kjölinn. Viðfangsefnið er tengt merkingarbærum viðfangsefnum úr reynsluheimi barnanna sem gerir það að verkum að þau ná frekar tökum á því.

Unnið er út frá hugmyndum og áhuga barnanna, þau fá tækifæri til að rannsaka á eigin forsendum. Þau fá að rannsaka ýmis viðfangsefni ítarlega og nýta þannig hæfni sína á fjölbreyttan hátt. Það hvetur börnin til að afla sér áframhaldandi þekkingar og þau fá betri skilning á sinni eigin reynslu og unhverfi sínu. Könnunaraðferðin er því góð leið til að styrkja félagshæfni barna og undirbúa þau undir lífið og það þjóðfélag sem þau lifa í.

Markmið  könnunaraðferðarinnar er að hafa áhrif á hugsun barna. Ekki aðeins færni og þekkingu heldur líka tilfinningalega, siðferðilega og fagurfræðilega þætti.


Vinnuferlinu í könnunaraðferðinni er skipt niður í þrjú stig.


Á fyrsta stigi er gerð áætlun, undirbúningur fer fram og viðfangsefnið er fundið.


Á öðru stigi sem er miðpunktur könnunaraðferðarinnar, er gögnum safnað á margvíslegan hátt. Þarna fer aðal þekkingarleitin fram og leitað er svara t.d. í bókum, á netinu, með vettvangsferðum og með umræðum.


Á þriðja stigi er vinnan metin, hvernig þekking barnanna hefur breyst og hvað hefur bæst við í ferlinu. Börnin útfæra reynsluna á fjölbreyttan hátt, t.d. í myndlist, tónlist og hlutverkaleik.


Þetta ferli getur tekið mislangan tíma allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur, allt eftir aldri og áhuga barnanna.

Öll stigin í ferlinu styðja hvert annað þannig að þegar börnin eru t.d. að vinna úr ferlinu í hlutverkaleik eða byggingaleik þá vinna þau úr upplifunum sínum úr öllu ferlinu og bæta þannig við við þekkingu sína. Þá geta vaknað upp nýjar spurningar hjá börnunum sem getur orðið til þess að þau finna hjá sér þörf til að rannsaka enn frekar.

Að lokum er verkefnið kynnt með því að setja upp sýningu á afurðinni fyrir foreldra, hin börnin og starfsmennina.




 
Hreyfing Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Sigrún   

Börn hafa mikla og ríka  þörf fyrir að hreyfa sig frjálst og óhindrað.  Hreyfing stuðlar að líkamlegri og andlegri vellíðan, gleði, snerpu og þoli.  Í hreyfileikjum öðlast barn skilning á styrk sínum og getu og sjálfstraust þess vex.  Samhæfing hreyfinga jafnvægi og öryggi barnsins eykst.  Auk þess fæst gott tækifæri með skipulagðri  hreyfingu til að örva líkams- og hreyfiþroska, félagsþroska og vitsmunaþroska.  Í útiveru fá börn mikla hreyfingu og eins er farið í skipulagðar gönguferðir.



Markmið

  • Að efla hreyfiþroska og hreyfigetu
  • Að styrkja samhæfingu hreyfinga barnsins
  • Að stuðla að vellíðan og öryggi
  • Að barnið þekki heiti líkamshluta, ýmis hugtök t.d. undir, yfir og fl.


Leiðir

Einu sinni í viku fer hvert barn í skipulagða hreyfistund annað hvort inni á sinni deild eða í markvissri hreyfistund utandyra, elstu börnin í íþróttahúsi Fellaskóla. Börnin fara eftir fyrirmælum kennarans sem vinnur eftir þar til gerðri áætlun.

Í hreyfistundum eru notaðar bæði dýnur og tæki til þess að efla hreyfiþroska, hreyfigetu og til að styrkja samhæfingu barnanna.

Unnið er í litlum hópum en við teljum það stuðla að öryggi hvers barns og vellíðan innan hópsins.

 
Myndlist Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Administrator   

Myndsköpun er mikilvægur tjáningarmiðill. Börn þurfa að fá að tjá sig með myndmáli og á skapandi hátt. Sköpun barna byggist á skynjun og reynslu þeirra. Þau eiga auðvelt með að tjá tilfinningar sínar í myndsköpun t.d. teikningum, mótun í leir eða með öðrum skapandi efnum. Frjáls og skapandi myndgerð barna, eins og t.d. teikningar mótast af þroskastigi þeirra, reynslu og uppvaxtarskilyrðum. Skapandi myndmótun eflir sjálfstraustið en aðaláhersla er lögð á ferli vinnunar en ekki aðeins útkomuna.

Markmið

  • Að barnið fái tækifæri til að tjá sig í ýmiss konar sköpunarvinnu
  • Að sjálfstæði barnsins aukist
  • Að barnið fái að kynnast hinum ýmsu efnum
  • Að þjálfa huga og hönd
  • Að þjálfa litaskyn og formskyn
     

Leiðir

Unnið er með myndsköpun bæði í frjálsum tímum inn á deildum og í hópastarfi og er þá fléttað saman við þemað okkar og aðra hópavinnu. Við vinnum bæði einstaklings og hópverkefni  bæði fyrirfram ákveðin eða alveg frjáls. Börnin kynnast sem flestum efnum í þemavinnunni og móta t.d. sjálfsmynd úr hinum ýmsu efnum svo sem mála, leira, gifsa og svo frv. Einnig er í boði myndsköpun á valtímum. Við reynum að mæta hverju barni þar sem það er statt og vekja áhuga þess. Börnin fá að vinna eftir sínum hraða og getu og yfirleitt er lögð áhersla á val barnanna sjálfra í sambandi við liti og efnisval.

 
Hópastarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Administrator   
Öll börnin fara í hópastarf einu sinni á dag. Hvert og eitt tilheyrir einum ákveðnum hópi og hefur sinn fasta hópstjóra. Lögð er áhersla að uppfylla námssviðin sex samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla en þau eru hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag. Börnin vinna einnig með könnunarnám en könnunarleik á yngstu deild.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fellaborg | Völvufelli 9 | 111 Reykjavík | s: 557 2660 | Póstur | Viðburðir | Fréttir