Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hér að neðan má sjá algengar spurningar og upplýsingar um ýmislegt sem við kemur leikskólanum og starfsemi hans.

Leikskólataskan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
bakpokar 

Öll börn fá sitt hólf í leikskólanum en börn sem eru hálfan daginn þurfa oftast að deila hólfinu sínu með öðru barni.  Þau börn þurfa að tæma hólfin sín daglega  en allir þurfa að tæma hólfin sín á föstudögum því þá eru þau þrifin.

Þar sem við reynum að fara út á hverjum degi, þá er nauðsynlegt að börnin hafi útiföt sem henta öllu veðri, því eins og við vitum er veðrið hér á Íslandi fjölbreytilegt.

Það sem börnin þurfa að hafa með sér í skólann er: aukaföt, þ.e. nærföt, sokka, sokkabuxur, buxur og peysu, hlýja peysu, húfu, vettlinga, ullarsokka, úlpu, regngalla, kuldagalla, skó, stígvél og inniskó.

Svo er mjög mikilvægt að föt barnanna, þá sérstaklega útifötin, séu vel merkt því þegar börnin eru að klæða sig sjálf úr þá geta fötin lent á vitlausum stað og starfsfólkið veit ekki alltaf hver á hvað því mörg barnanna eiga alveg eins fatnað.
 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
sicksmileyface2Leikskólar eru ætlaðir heilbrigðum börnum. Þar eru ekki aðstæður til að annast sjúk börn. Til að barnið njóti leikskólastarfsins þarf það að vera fært um að taka þátt í því starfi sem þar fer fram.
Fái barn smitandi sjúkdóm verður það að dvelja heima þar til smithætta er liðin hjá. Er þetta nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma í leikskólanum og sjálfsögð tillitsemi gangvart öðrum börnum.
Börn þurfa að vera hitalaus heima í amk. einn dag áður en þau koma aftur til starfa.
Börn geta fengið að vera inni einn dag eftir veikindi.
Almennt er reglan sú að börnum er ekki haldið inni til að koma í veg fyrir veikindi. Útivist barna er snar þáttur í starfi leikskóla. Mikilvægt er því að börnin taki þátt í henni. Sumir foreldrar hafa tilhneigingu til að óska eftir inniveru fyrir börn sín í því skyni að verja þau gegn sýkingu og öðrum veikindum. Það er ekkert sem bendir til þess að börn sýkist fremur í útilofti en innandyra.
 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
afmaeli 

Samræmdar reglur eru um hvernig haldið er upp á afmæli barnanna.  Það er ekki í boði að koma með sælgæti eða gosdrykki á leikskólann.  Ef foreldrar vilja leyfa barninu sínu að bjóða uppá eitthvað í leikskólanum þá er leyfilegt að koma með ís, snakk eða saltstangir. Við bjóðum þá upp á djús með snakkinu.  Okkur finnst að afmælisdagurinn eigi ekki að snúast um veitingarnar heldur um barnið sjálft.  Barnið er þá þjónn þennan dag, býr til kórónuna sína og er í svolitlu aðalhlutverki þennan dag. Barnið fær að velja sér disk og glas til að nota í matmálstímum. Við höfum úr nokkrum gerðum að velja með vinsælum teiknimyndafígúrum.


Lesa meira...
 
Lyfjagjöf á leikskólatíma Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Starfsfólki er ekki heimilt að sjá um lyfjagjafir barna í leikskólanum.  Ef um undanþágur er að ræða þarf að hafa samband við leikskólastjóra.  Astmapúst og ofnæmislyf eru þessu undanþegin

 
Slys á börnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Ef barn slasast í leikskólanum, höfum við tafarlaust samband við foreldra og bregðumst við hverju tilfelli fyrir sig eftir bestu vitund. Leikskólar Reykjavíkur borga fyrstu komu á slysadeild. 
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fellaborg | Völvufelli 9 | 111 Reykjavík | s: 557 2660 | Póstur | Viðburðir | Fréttir