| Leikskólinn Fellaborg |
|
|
|
| Höfundur: Harpa |
| fimmtudagur, 21 febrúar 2008 20:24 |
|
Fellaborg
hóf starfssemi sína 16. nóvember 1973. Þar er unnið er eftir
aðalnámskrá leikskóla, með áherslu á leik barnanna sem náms- og
þroskaleið. Við ræktum alhliða þroska barnsins sem felst meðal annars í líkams- og hreyfiþroska, tilfinningaþroska, vitsmunaþroska, mál- og félagsþroska, félagsvitund, fagurþroska, sköpunarhæfni, siðgæðisþroska og siðgæðisvitund. Til grundvallar starfi okkar leggjum við hugmyndafræði Dewey sem segir að virkja eigi athafnaþörf barnsins og vekja áhuga þess. Barnið eigi að læra með því að framkvæma, það eigi að vera virkt og skapandi. Við styðjumst einnig við þær sálfræðikenningar sem tengjast vitþroskakenningu Piaget, þar sem megináherslan er ,,að virkni barnsins og þróun þess er árangur af samvirkni milli barnsins og umhverfisins". Piaget segir að leikurinn endurspegli vitþroska barnsins, að sérhvert vitþroskaskeið barnsins eigi sér hliðstæðu í leikatferli þess. Við erum með könnunarleik fyrir yngstu börnin og nýtum okkur einnig hluta af hugmyndafræði ,,Reggio" sem kennd er við borgina Reggio Emilia á Norður Ítalíu, þ.e. könnunarnám fyrir eldri börnin. Að baki þessarar stefnu stendur maður að nafni Loris Malaguzzi. Megin markmið Malaguzzi var meðal annars að hvetja börnin til þess að nota öll skilningarvit sín, málin sín hundrað. |
| Síðast uppfærsla: þriðjudagur, 26 febrúar 2008 08:43 |