|
Almennar fréttir
|
|
Höfundur: Sólveig Larsen
|
|
þriðjudagur, 22 júní 2010 14:35 |
|
Í dag fórum við í Gufunesbæ með Stjörnufell og eldri hópinn á Sunnufelli.
Það var mjög gaman. Við vorum sótt í litlum rútubíl og á móti okkur tók Magnús (pabbi Aþenu) ásamt nokkrum unglingum úr Grafarvogi. Þau fóru með okkur í alls konar leiki, bæði úti og inni og við hreyfðum okkur ekkert smá mikið. Svo var hægt að prófa að klifra í klifurturni og svo máttum við líka sitja inni og lita og fleira. Við fengum pylsur í hádeginu. Við vorum svo keyrð heim um eittleytið. Sjáið myndirnar.
|